05.02.2012 18:43
Samkirkjuleg samkoma
Þess vegna verður samkoman hjá okkur með lækningaprédikaranum Hans Berntsen kl.14.00
25.01.2012 20:23
Fjáröflunar Dinner
Allur ágóði rennur til byggingar drengjaheimilis í Nakuru kenya.
Miðaverð kr. 4000
Miðar eru seldir í Hvítasunnukirkjunni Keflavík, einnig er hægt að skrá sig í síma 6977993 eða á netfangið hvitkef@simnet.is
Gestir okkar Leif og Susanne Madsen, sem búa í Nakuru Kenya og veita forstöðu barnahjálpinni, New Life Africa International munu ávarpa okkur.
Einnig fáum við að hlýða á góðan söng o.fl.
Endilega látið vita, ef þið sjáið ykkur fært að mæta.
18.01.2012 19:27
Lækningaprédikari í heimsókn.
|
|
Tími kraftaverkanna er liðin, heyrir maður oft sagt. Það er þó sjaldan sagt af þeim sem hafa tekið þátt í samkomu hjá Hans Berntsen. Í meira en 25 ár hafa þúsundir manna komið út af hans samkomum með vitnisburð um kraftaverkalækningu, annað hvort þeirra sjálfra eða annarra.
11.01.2012 21:53
Samkirkjuleg samkoma
Þeir sem taka þátt eru þjóðkirkjurnar á svæðinu, ásamt Aðventkirkjunni, Hjálpræðishernum og Hvítasunnukirkjunni.
Þetta er þriðja sameiginlega samkoman sem við höldum, sú fyrsta var í október í Keflavíkurkirkju og síðan vorum við í nóvember í Útskálakirkju.
Þetta hafa verið mjög ánægulegar samverur og gott að efla einingu og kynnast betur.
Vörður Traustason verður ræðumaður í þetta sinn og sönghópar kirknanna taka þátt.
24.12.2011 09:08
Gleðileg jól
Óskum ykkur öllum okkar góðu gestum gleðilegra jóla og megi friður Guðs varðveita ykkur í Kristi Jesú um þessi jól.
Vil benda á myndband vikunnar hægra megin á forsíðu, en þar segir frá vitnisburði íranskrar konu sem hrópaði til Guðs, eftir að drengurinn hennar dó í fangi hennar.
Einnig vil ég benda á frábæran vitnisburð frá " Syni Hamas" Mosab Hassan Yousef
á bloggsíðu minni: www.kiddikef.blog.is
02.11.2011 17:02
Kenyaferð
Undanfarið höfum við hjónin farið 2 svar á ári til að kenna á biblíuskóla fyrir leiðtoga í Kenya. Það eru hjón frá U.S.A sem standa fyrir skólanum. Kennt er í 3 tveggja mánaða áföngum.
Eftir að hafa starfað í Kenya í nokkur ár, fengu þau hjónin Paul og Donna Tocco sýn fyrir því að opna biblíuskóla.
Margir voru með samkomuherferðir þar sem fólk frelsaðist, og þau tóku eftir því að pastorar voru oft nýfrelsaðir og höfðu lítin sem engan grundvöll í orðinu.
Í þetta skipti voru 15 nemendur ( sjá Myndaalbúm) og margir búnir að veita forstöðu kristilegu starfi árum saman.
En þörfin fyrir fræðslu er mjög augljós, einnig eru alls konar furðulegar kenningar til staðar.
En þetta var góður tími með þessu yndislega fólki.
Okkur var einnig boðið í hádegismat hjá indversku fólki sem var að halda upp á nýtt ár að hindúa sið. ( Sjá mynda albúm) Og þar rakst undirritaður á forláta Peguot bifreið sem hann varð að fá mynd af sér með. Átti svona bíl fyrir 15 árum.
Heimsókn okkar lauk með dönsku hjónunum Leif og Susanne Madsen sem reka skóla fyrir 550 börn og heimili fyrir u.þ.b. 100 börn, sem kirkjan okkar er tengiliður fyrir á Íslandi.
Það eru forréttindi að fá að taka þátt í verki Guðs í Afríku.
