Færslur: 2009 Desember
20.12.2009 15:56
Styrktarsala
Þessi ungi maður hefur verið í Skansinum undanfarnar helgar að selja greni, penna og diska til syrktar barnahjálpinni okkar í Nakuru Kenya. Við erum að safna fyrir byggingu drengjaheimilis. Nú þegar hefur safnast um ein og hálf milljón króna. Ef þig vantar greni fyrir jólin á góðu verði þá er ennþá eitthvað til. Hringdu í síma 8572212
Skrifað af Kristinn Ásgrímsson
18.12.2009 21:05
Jólahátíð nálgast
Nú nálgast jólin óðfluga og eflaust margir farnir að telja dagana, þótt öðrum langi alls ekki til að halda jól. En við sem vonum á Drottinn biðjum þess að allir megi finna frið og njóta samvista sinna nánustu um þessi jól.
Við vorum með frábæra samveru, sem reyndar voru tónleikar á veitingastaðnum Ránni, fyrir viku síðan. Staðurinn var nánast fullsetinn og í þetta sinn var það hin "raunverulega " gleði sem var við völd. Ung kona, Ósk Norðfjörð, sagði frá reynslu sinni með Guði, hvernig hún hafði læknast og síðan hvernig Guð hafði svarað hennar bæn, viðvíkjandi ömmu hennar. Hvatti Ósk samkomugesti til að leita Guðs. Stórkostlegur vitnisburður.
Nú er biblíuskólanum lokið á þessu ári , síðasta kennslan var í gærkveldi, en þá kenndi bróðir okkar frá suður Afríku, Ron Botha um tíund.
Alfa tekur svo við eftir áramót. Alfakynning verður 14 janúar .
Okkar hátíðarsamkoma um jól verður að venju á aðfangadag kl.17.00.
Siðan er næsta samkoma þar á eftir sunnudaginn 27 des kl.11.00.
Þá mun alþjóðlegi hópurinn okkar sjá um samkomuna.
Á gamlársdag hittumst við kl. 16.30 og höfum þakkargjörðarsamkomu.
Gleðilega hátíð.

10.12.2009 23:20
Jóla-Gospel á Ránni
Jólatónleikar verða á veitingahúsinu Ráin við Hafnargötu í Reykjanesbæ kl 20 föstudaginn 11.des.
Fram koma G.I.G. sem er frábær sönghópur og hljómsveit. Gestasöngvari er Regína Ósk.
Aðgangur er ókeypis.
Fram koma G.I.G. sem er frábær sönghópur og hljómsveit. Gestasöngvari er Regína Ósk.
Aðgangur er ókeypis.
Skrifað af Kristinn Ásgrímsson
Flettingar í dag: 148
Gestir í dag: 47
Flettingar í gær: 199
Gestir í gær: 71
Samtals flettingar: 295734
Samtals gestir: 66912
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 21:19:49